Í dag var hjóladagur í leikskólanum. Börnin komu með hjól og hjálm að heimann og fengu að hjóla á bílaplaninu. Lögreglan kom og skoðaði hjólin þeirra og hjálm og gáfu þeim límmiða á hjólin. Skemmtilegur dagur :)
...Síðasta þriðjudag kom Lóa í heimsókn til okkar því hún náði ekki að kveðja alla á föstudeginum. Allir voru glaðir að sjá hana og vildu ekki hleypa henni heim aftur. Hún kom færandi hendi með ávexti handa börnunum sem þau fengu í kaffitímanum.
...Í dag voru krakkarnir að mála frjálst með höndum og áhöldum í listakoti. þau máluðu á borðið og svo var blaði þrykkt á málninguna og úr varð mynd. Eftir þetta fengu þau að sulla í vaskinum með höndunum og dóti. Allir skemmtu sér vel við þetta :)
...Í dag fóru elstu börnin í göngu á Hólaróló og léku sér þar. Á leiðinni heim sáu þau hund. Yngstu börnin fóru út að leika í nýja garðinum og skemmtu allir sér vel :)
...Í tilefni af degi leikskólans sem var 6. febrúar síðastliðinn, máluðu börnin á Furukoti á glært lok. Þau voru síðan hengd upp í trén fyrir framan garðhliðið :)
...Á Furukoti er lögð áhersla að njóta aðventunnar.....
...