Karellen
news

Vikan 22-25 febrúar

25. 02. 2021

Heil og sæl.

Á morgun verður flæði á milli deilda en þá opnum við á milli deilda og nemendur mega fara um og velja sér leik, stað og leikefni að vild. Við munum hafa flæði síðasta föstudag í hverjum mánuði fyrir hádegi.

Á mánudögum verður sameiginleg söngstund í sal en hún mun framvegis vera á mánudögum kl. 9.00-9.15. Haddý kemur með gítarinn og við syngjum gömul, ný og skemmtileg lög.

Fugla- og Fiskahópur fór í gær í göngutúr og útikennslu upp að Hamrinum. Við höfum tekið ávexti með og farið í þrautir og leiki (til dæmis finna hluti á leiðinni og merkja við). Kisu- og Hundahópur fer í dag í göngutúr og útikennslu.

Kveðja, starfsfólk Grenikots.


© 2016 - 2024 Karellen