Karellen
news

Öryggisvika 17-21 maí

21. 05. 2021

Þessa vikuna var öryggisvika og nemendur fræddust um umferð og öryggi á ýmsa vegu.

Við æfðum okkur í að fara eftir umferðareglum í göngutúrum, lásum sögur um krakkana á Kátugötu og fleira. Inn á vefsíðunni Umferðarvefurinn | Umferð.is (umferd.is) er allskonar efni sem gaman er að skoða tengt umferðaröryggi.

Á hverju ári fara síðan nemendur í skólahóp (elsta hóp) í hlutverk brunavarða og fara um leikskólann og athuga hvort að útgangar, reykskynjarar, slökkvitæki, ljós og annað sé í lagi eða aðgengilegt.

Á næstu dögum verður síðan brunaæfing hér á leikskólanum en þá er bjallan sett í gang óundirbúið og við rýmum leikskólann eins og rýmingaráætlun gerir ráð fyrir. Þá er tökum nafnakall og förum út á pall eða að kastala. Annars tökum við alltaf æfingu þegar bjallan fer í gang og allir fara í röð hjá útgönguleiðum.

Hjóladagurinn var á þriðjudaginn og lögreglan kom og tók út hjólin í öryggisskoðun. Við bjuggum til braut með umferðakeilum og þau hjóluðu um á bílaplaninu í rúmlega klukkutíma.

Á fimmtudaginn komu slökkvilið, sjúkraflutningafólk og lögregla í heimsókn. Nemendur fengu að fara skoða bílana, setjast inn í þá og jafnvel setja sírenuna af stað. Þau voru dugleg að spyrja spurninga og skoðuðu af miklum áhuga öll tæki og tól sem í bílunum eru. Allir fengu að sprauta úr brunaslöngunni sem vildu sem var hápunkturinn hjá sumum. (Sjá myndir á karellen).

Góða helgi!


© 2016 - 2024 Karellen