Karellen
news

Starfsmannafundur og öskudagur

18. 02. 2021

Góðan dag.

Nemendur skemmtu sér mjög vel á öskudagsballinu í gær. Það var aldeilis gaman að mæta í búningum og gera sér dagamun. Hægt er að sjá myndir hér á heimasíðunni og inn í Karellen appinu.

Karellen appið er í uppfærslu.

Eins og þið flest hafið tekið eftir í dag er komið nýtt og endurbætt app í Karellen. Þau hjá Karellen höfðu fengið þær upplýsingar að notendur þyrftu að sækja nýja appið en „gamla“ appið átti ekki að uppfærast sjálfkrafa í nýja appið. Því miður fór sem fór eða „gamla“ appið uppfærðist í það nýja. Við fengum þær upplýsingar frá Karellen að það verður því miður einhver hægagangur í kerfinu. Allt þeirra tæknifólk vinnur hörðum höndum í að bæta hraðann og bæta úr því.

Við minnum á starfsmannafundinn mánudaginn 22.febrúar er milli 8.00 og 10.00.

Kveðja, starfsfólk Óskalands.

© 2016 - 2024 Karellen